Fréttaskot

25% afsláttur af gisingu ef þú bókar fyrir 15 maí 2009

Aðeins kr. 7500 fyrir tveggja manna herbergi

 
powered_by.png, 1 kB
Heim arrow Grenivík
Grenivík PDF Prenta Rafpóstur

Grenivík tilheyrir Grýtubakkahreppi sem er við austanverðan Eyjafjörð. Í sveitarfélaginu eru 377 íbúar, tæplega 300 í kauptúninu og um 100 í blómlegri sveit suður af Grenivík. Kauptúnið stendur undir fjallinu Kaldbak sem er 1167 m hár. Skemmtilegar gönguleiðir eru upp á Kaldbak, en fyrir þá sem kjósa léttari leiðir er Þengilhöfði ákjósanlegri. Þengilhöfði er 260 m hátt fjall suður af Grenivík. Fleiri fjöll í byggðarlaginu er ögrandi að klífa svo sem Blámannshattur og Laufáshnjúkur.

Þegar minnst er á Grenivík eða Grýtubakkahrepp koma Fjörðurnar og Látraströnd fljótt upp í hugann. Á Látraströnd og í Fjörðum var byggð áður fyrr og fóru síðustu jarðirnar í Fjörðum í eyði árið 1944 og nú er aðeins einn bær í byggð á Látraströnd. Þessar gömlu byggðir eru paradís göngumannsins og sífellt fleiri leggja leið sína á þetta svæði til að kynnast fjölbreyttri og fallegri náttúru og sögu forfeðra okkar sem bíður við hvert fótmál.

Fyrir ferðamenn eru margir skoðunarverðir staðir í sveitarfélaginu. Má þar m.a. nefna Laufás, sem er fornfrægt höfuðból og kirkjustaður. Þar er nú prestsetur og gamall torfbær sem er í vörslu Þjóðminjasafns Íslands. Hann er opinn ferðalöngum til skoðunar.

Byggðarlagið vekur sífellt meiri áhuga ferðamanna og ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi. Hestaleiga er hjá Pólarhestum á Grýtubakka, Fjörðungar sérhæfa sig í gönguferðum um Fjörður og Látraströnd og Kaldbaksferðir bjóða upp á snjótroðaraferðir upp á Kaldbak. Veiði er í Fnjóská og Fjarðará í Hvalvatnsfirði og þá er hægt að komast í hvalaskoðun frá Grenivík.

Þeir sem hafa tíma til að staldra við utan hringvegarins ættu að taka lykkju á leið sína og heimsækja byggðarlagið og njóta náttúrufegurðar og persónulegrar gestrisni heimamanna

Nálgast má meiri upplýsingar á heimasíðu Grýtubakkahrepps

 

(Tekið af travelnet.is)

 
© 2010 Gistiheimilið Miðgarðar
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.