|
Hægt er að velja mismunandi gistimöguleika. - Hamraborgin er nýleg bygging sem hefur 4 stór herbergi. Hvert herbergi hefur sér snyrtingu með sturtu. Í hverju herbergi er einnig að finna flatskjá, útvarp og ísskáp.
- Miðgarðar er elsta hús Grenivíkur og er það einstök upplifun að gista í þessu húsi. Efri hæð hússins hefur að geyma 5 herbergi og eru tvö rúm í hverju herbergi. Á neðri hæð hússins er salerni, sturta, setustofa, eldhús og salur. Neðri hæð hússins er aðgengileg gestum Hamraborgarinnar.
- Grenivíkurskóli er notaður á sumrin undir svefnpokagistingu og er hægt að koma allt að 10 manns í hverja stofu. Hentugt fyrir stærri fjölskyldur og hópa. Boðið er upp á dýnur með laki.
Ath að ekki verður boðið upp á morgunverð þetta sumarið en það er góð eldunaraðstaða sem og aðgengi að ísskáp, kaffivél og fleiru.
|